5.1.2011 | 12:52
Sá á kvölina sem á völina
Ef allt sem þú þarft að kaupa er til í 60 útgáfum, 48.750 vörur í búðinni 5 sinnum fleiri en 1975. Þetta er staðan í mörgum erlendum stórmörkuðum. Breska Tesco hefur á lager 91 tegund að sjampói, 93 tegundir af tannkremi og 115 af hreinsivökva.
Í þeirri stöðu sakna menn kaupfélagsins, því einhver góður maður sagði, ef það fæst ekki í kaupfélaginu, þarftu það ekki !
Auðvitað er gott að hafa úrval en lífið er að verða dálítið flókið:
- Það eru venjulega vörur,
- Lífrænar vörur,
- Endurnýjanlegar vörur,
- Sykurskertar vörur,
- Í öllum þessum flokkum er svo innihaldslýsing í leturstærð sem hæfir efni og pakkanum. Sjóndaprir sjá brotabrot af því sem þarna stendur,
- Innihaldslýsingin, sýnir svo efni í vörunni og hitaeininga. Ef maður væri nú bara efnafræðingur.
- Framleiðendur verða að tilgreina öll efni í vörunni, og leiðbeiningar um meðferð annars eiga þeir á hættu að verið lögsóttir.
Sumir glansa í gegnum frumskóg vöruhúsanna, lesa á alla miða og kunna þetta allt saman. Aðrir velja alltaf sömu vöruna, þeir þekkja hana, engin ævintýri. Varkárir sjóndaprir neytendur hafa með sér stækkunargler til vonar og vara.
Tökum tvö dæmi af handahófi um vöruúrval í breskri búð:
Kartöfluflögur:
Í gamla daga voru 3 bragðtegundir (ready salted, cheese and onion, or salt and vinegar ) Í dag eru þetta (Thai sweet chilli, balsamic vinegar and caramelised onion, Oriental red curry, lime and coriander chutney, vintage cheddar and onion chutney, buffalo mozzarella and herbs, chicken tikka masala )
Ef þú vilt fara í sérútgáfur þá bjóðast. (jalapeño pepper, roast ox, horseradish and sour cream, Ludlow sausage with wholegrain mustard. Crisps these days can be crinkle-cut, thick-cut, ridge-cut, square-cut, hand-fried, reduced fat, sold in six-packs, grab bags, party size or family packs.)
Kaffi:
Í gamla dag var þetta einfalt, Braga - kaffi og Kaaber.
Nú er hægt að fá Latte . ( tall, short, skinny, decaf, flavoured, iced, spiced or frappé. )
Að ekki sé talað um allar kaffitegundir.
Ekki er nokkur vafi á að þetta úrval hefur bætt lífsgæði margra. Allt þetta úrval, er líka sýnishorn af nýsköpun og hugmyndaauðgi. Markaðir dagsins í dag byggja á frjálsu vali, samkeppni. Það má ætla að einhver kaupi allar þessar vörur annars væru þær tæplega framleiddar.
Þó leynist í huga manns spurningin um, hvort allt þetta úrval, sé að hinu góða. Það er mikill iðnaður að baka þessa sem kostar sitt og einhver verður á endanum að borga fyrir þetta. Hver skildi það nú vera - neytandinn.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.