Hvað get ég gert !

Já hvað get ég gert til að létta undir og vinna okkar þjóð út úr vandanum.  Þessi spurning ætti að hljóma innra með okkur á hverjum degi. 

Þú getur gert mikið:

  • Þú getur verið jákvæður. Jákvæðni er feiknarlega sterkt afl. Jákvæðni skapar meiri jákvæðni í sjálfum þér og öllu þínu umhverfi. Jákvæðni er smitandi og dregur aðra áfram. Virkni jákvæðninnar í heiminum er hið stóra leyndarmál.
  • Þú getur fyrst og fremst haft áhrif á þitt umhverfi, fjölskyldu, vinnufélag, umhverfið. Ef þú hugsar um það hvað þú „ snertir „ marga á einni vikur, þá kemst þú að raun um hvað áhrif þín eru mikil. Ég tala nú ekki um ef þú ert í áhrifastöðu, kennari, fjölmiðlamaður eða hvaðeina,
  • Keðjuverkandi áhrif hóps sem flytur með sér, jákvæðni, von og traust er ótrúlegt. Viljum við ekki öll vera samvistum við svona fólk og þekkjum við ekki svona fólk

Stjórnvöld, sem alltaf er verið að biðla til, hvað er það.  Fjármálaráðherra, hversu duglegur sem hann nú er, er aðeins einn maður. Hann veit manna best að hann fær litlu áorkað, nema hann hafi áhrif á aðra.  Völd ráðamanna dagsins  í dag, eru nefnilega óbein og oft minni enn aðrir halda.

Stjórnendur, uppalendur skynsamt fólk veit að það er ekki hægt, nema þá með valdi, að fá einhver til að gera eitthvað nema sá hinn sami vilji það sjálfur. Til að laða fram þennan vilja er jákvæðni og umhyggja meðulin sem virka.

Smitum frá okkur jákvæðni, sá sem liggur í sorg og sú, hjálpar engum. Veltu því fyrir okkur, að ef allir virkja sinn hring með þessum hætti, er árangurinn ógnarkraftur.

Það er ágætt að berja bumbur, mótmæla, einhver stjórnvöld eiga að leysa vandann. Þessir aðilar eiga vissulega að standa sig, en ég er sannfærður um að það er fólkið í landinu, sem mun á endanum, ríða baggamun.  Fyrir utan það, er það mín lífsskoðun að framtak einstaklingsins sé sá drifkraftur flytji fjöll og byggi brýr.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Vala Jónsdóttir

Vel skrifað pabbi minn, ég svo sammála þér.  Við erum það sem við hugsum sagði einhver, ef við erum jákvæð fáum við jákvæð viðbrögð.  Ég ætla að gera það að markmiði mínu árið 2011 að hugsa jákvæðar, bæði um sjálfa mig og aðra í kringum mig.

Kolbrún Vala Jónsdóttir, 4.1.2011 kl. 17:11

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Takk fyrir þetta Jón Atli, það þarf engu að bæta hér við.

Sigurður Þorsteinsson, 4.1.2011 kl. 20:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband