2.1.2011 | 14:44
Lífsgæði
Hafði áður enn ég fór hlustað á forsetann. Frábært ávarp og Ólafur verður landsföðurlegri með hverju árinu sem líður. Hann gladdist yfir að fá í hús á Bessastöðum, skrifpúlt Sveinbjörns Egilssonar þess merka manns. Einhvern vegin datt mér í hug að Kínverjar, nefna árin nöfnum, ár ljónsins, kattarins osfv. Þetta myndmál Kínverjanna hefur sínar jákvæðu hliðar í staða þurra talna.
Sá fyrir mér að ef þetta væri yfirfært á Ísland þá væri árið 2011 ár skrifpúltsins, árið 2008 var sannarlega ár hrunsins. Það má svo bæta við þetta eftir því sem hugmyndaflug leyfir.
Gönguferðir skapa með manni vellíðan og upp í hugann kemur orðið lífsgæði. Lífsgæði, er saman sett úr ótal hlutum, eins og ég skil þetta orð. Það er mikil skerðing á lífsgæðum ef maður er alltaf veikur, alltaf þreyttur, alltaf sárfættur, alltaf blankur, alltaf útundan. Forsetinn minnti okkur á það í ávarpi sínum hvað lífsgæði eru þrátt fyrir allt mikil í okkar góða landi.
Á áramótum meta margir stöðu sína, hluti þess mats er lífsgæði. Ég er sjálfur alveg viss um að árið 2011 verður mér og mínum gott ár og vonandi öllum öðrum. Ég held þrátt fyrir allt að þó maður eigi ekki allt, þá séu margar einfaldar og kostnaðarlitlar aðferðir við að bæta lífs sitt. Það kostar ekki mikið að labba í Elliðaárdalnum en ég fullyrði að við það aukast lífsgæði mikið. Sá hluti lífsgæða sem felst í ást og umhyggju kostar ekki mikið, en margur vildi gefa milljónir fyrir að fá hana. Hvað á að segja um eitt gott knús, þegar maður er eitthvað dán.
Bætt lífsgæði þurf því ekki að vera eitthvað stórkostlegt, nýr bíll eða nýtt hús, það er vel hægt að komast af með minna.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gleðilegt ár og takk fyrir þessar vikur sem við höfum verið bloggvinir. Ég er sammála þér með gönguferðirnar. Fer sjálf flesta daga út að ganga og nýt þess. Bý við þann lúxus að hafa sjávarilmin fyrir vitum í gönguferðum mínum:)
Sigurbjörg Eiríksdóttir, 3.1.2011 kl. 08:00
Sammála pabbi minn, það eru ekki veraldlegu hlutirnir sem skipta mann máli, heldur nærvera ástvina og samskipti við þá og vinina sem skipta mestu máli í lífinu
Kolbrún Vala Jónsdóttir, 3.1.2011 kl. 11:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.