1.1.2011 | 14:25
Áramót.
Ágætu vinir,
Bestu óskir um gleðilegt nýtt ár. Ég er alveg sannfærður um að 2011 verður gott ár. Þakka innilega þeim mörgu sem hafa heimsótt síðuna mína.
Allir sem skrifa eitthvað geta látið sig dreyma um frægð og frama. Ekki væri nú ónýtt að fá Nóbelsverðlaunin. Já það er nú að setja markið nokkuð hátt. Ég fór því að hugsa, að í þessu óskaplega flóði ritaðs máls, blaða, bóka, að ég tali nú ekki um netið, eru þá ekki hugtök eins og gott og slæmt einhvern vegin hætt að þýða nokkuð. Fólk er blátt áfram bombarderað með texta á hverjum degi svo útyfir tekur, þjóðin er fórnarlamb ritræpu.
Þetta er nú dálítið þykkt smurt hjá mér og hofmóðugt. Ég verð hinsvegar að segja það eins og er að þegar mest á gengur t.d. fyrir jól þá finn ég til sterkrar þarfar að verja mig fyrir öllu því áreiti sem að manni er beint.
Hvað sem þessu líður þá verða allir að hafa markmið, annars veistu ekki hvert þú ert að fara og þig rekur fyrir vindi og straumi. Hvað markmið á ég svo sem að hafa fyrir mín fátæklegur skrif og hugleiðingar. Eftir mikil heilabrot komst ég að þeirri niðurstöðu að ef ég næði þeirri stöðu að einhver klippti út grein eða blogg eftir mig og hengdi hana á ísskápshurðina hjá sér, gæti ég dáið sæll og glaður.
Ég er nefnilega sannfærður um að ekki verður hærra komist, því í eldhúsinu og á ísskápshurðinni er lífið, hið raunverulega líf fólksins, en ekki montprika samkomur, sem gleymast fljótt. Þú er meðal bókmennta lífsins, það sem einhver klippir út af því að það hafði einhverja þýðingu fyrir hann, ásamt praktískum málum, Siggi til tannlæknis kl. 10.00, fara með föt í hreinsun, tala oftar við mömmu.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.