Hinn alþjóðlegi fjárfestir

Mitt í öllu krepputali hefur mér fundist það mjög áhugavert að ræða við erlenda viðskiptafélaga og heyra hvernig þeir sjá stöðu Íslands. Þeir segja:
  • Ísland er vestrænt menningar ríki. Landið er í NATO, hér ríkir öryggi og þróað réttarfar,
  • Ísland verður eftir 3-4 ár komið út úr núverandi erfiðleikum. Það er í sjálfu sér ekkert vandamál að fjárfesta á Íslandi. Þeirra áherslur á það í hverju á að fjárfesta eru mjög athyglisverðar og ekki munu allir spekingar vera ánægðir með þá sýn,
  • Íslenskt vinnuafl er í dag áhugavert, en kann að verða fljótt aftur dýrt,
  • Þannig hefur fjármagnið ( erlendir fjárfestar ) þegar greint stöðuna hér á landi.

Almennt má segja um fjárfesta:

  • Allir sem eiga peninga eru varkárari en áður, cash is king,
  • Mat á verðmæti fyrirtækja og hugmynda er gerbreytt. Engar 2007 hugmyndir. Mjög slæmar fréttir fyrir bankana, sem ætla sér að eignast og stjórna hluta fyrirtækja landsins. Halda fast í þá von að fá til baka tapaðar kröfur sínar, með því að stjórna og ráða og selja seinna.
  • Fjárfestirinn er mjög alþjóðlegur í hugsun. Hann vinnur þar sem „ best „ er að vinna. Hann er ekki að leysa atvinnumál á einhverju svæði, „ nema honum sé borgað fyrir það"
  • Fjárfestirinn er stöðugt að leita að tækifærum sem gefa honum sérstöðu,
  • Baráttan um hráefni heimsins, er hér augljósast dæmið.

Þegar rætt er um efnahagsvanda þjóðanna eru lausnirnar mjög líkar

  • Hvetja erlenda fjárfesta til að fjárfesta í landi sínu,
  • Framleiðsla nýrra fyrirtækja á að vera til útflutnings. Hvert þessar vörur eiga að fara, er áhugaverð spurning. Til að þetta módel gangi upp þarf alþjóðleg eftirspurn og kaupmáttur að aukast,

Á Íslandi er umræðan á svipuðum nótum, sem er ekki nógu gott. Eigum að vera öðruvísi - sérstök.  Við þurfum hinsvegar einnig að hugsa um að:

  • Sá sparnaður sem er í landinu og er talsverður, þarf að finna sér leið í fjárfestingar hér heima. Við eigum sem sé að vinna með okkar peninga og örva sparnað, að því marki sem við getum
  • Vinnum með sérstöðu okkar í alþjóðlegu samhengi. Á hverjum degi eru að koma upp svið þar sem við höfum sérstöðu og sóknarfæri,
  • Fylgjumst vel með baráttunni um auðlindir heimsins, sem af augljósum ástæðum fer fram í kyrrþey.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband