29.12.2010 | 22:52
Bókin um Gunnar Thoroddsen, rituð af Guðna Th. Jóhannessyni
Fyrir mig er þetta sérstaklega áhugaverð lesning þar sem ég þekki af eigin raun hluta þessarar atburðarásar. Var m.a. í stjórn SUS um og uppúr 1970. Ég upplifði sjálfur:
- Ræðusnilld Gunnars. Hann talaði t.d. yfir okkur ungum sjálfstæðismönnum á fundi í Valhöll á Þingvöllum 1970. Sú ræða hans var alger snilld, og blés þessum hópi ungra manna svo sannarlega baráttuanda í brjóst. Á þessi sviði stóð enginn Gunnari á sporði, hvorki fyrr né síðar,
- Gunnar var stórbrotin einstaklingur og saga hans var saga sigra og glæsimennsku. Hún var einnig saga sorgar og mótlætis, saga manns sem ekki komst á þá hilli í lífinu - stjórnmálunum, sem hugur hans stefndi til,
- Gunnar var fæddur mentor og allir sem vilja læra stjórnmál eiga að kynna sér aðferðafræði og vinnubrögð hans. Gunnar var einnig stöðugt að leitast við að bæta sjálfan sig,
- Átök Gunnars og Geirs Hallgrímssonar, sem ristu Sjálfstæðisflokkinn í sundur,niðurrif sem engum gagnaðist, nema andstæðingum flokksins. Persónulegur ágreiningur tveggja manna sem þó deildu sömu lífsskoðun. Hugur minn og samúð var öll hjá Geir í þessum átökum
Í bókinni er sagt mjög ítarlega frá vinnubrögðum forystu Sjálfstæðisflokksins og pólitík þessa tímabils. Margt má af þessu læra fyrir stjórnmál dagsins í dag.
- Þrátt fyrir sterka leiðtoga, var umræða forystumanna, flokksins miklu lýðræðislegri" en hún er í dag. Valdakerfi flokksins var betur nýtt, ákvarðanir voru meira ræddar og fleiri komu að málum en nú er. Toppar flokksins urðu svo sannarlega að hafa fyrir því að sannfæra samherja sína í flokknum um ágæti tillagna sinna. Þetta var mögulega mjög tímafrekt, að ná samstöðu, en hafði sína augljósu kosti. Foringjaræði og þröng klíka er mottó dagsins og afsökunin tímaskortur. Niðurstaðan, breytt bil skapast milli forystu og flokksmanna, forystuliðið einangrast,
- Sjálfstæðisflokkurinn er breiðfylking innan hans verða að rúmast margvíslegar áherslur. Gunnar lagði t.d. áherslu á frelsi með skipulagi, til að tryggja frelsið þarf að setja því vissar skorður og skipulag" Þegar horft er til s.l. áratugar og hrunsins hefði mögulega margt verið öðruvísi, ef þessi sjónarmið hefur verið í meiri hávegum höfð.
Ég mæli með lestri þessar bókar um Gunnar. Í bókinni er að finna margar fleygar setningar og vísur sem hann hefur sett fram. Mikilvægur þáttur í ferli hvers stjórnmálmanns að eiga slíkar setningar og tilvitnanir. Ólafur Thors, þegar verkamenn ætluðu að lúskra á honum í Keflavík hann steig út úr bílnum, og sagði, hvar er hægt að míga hér strákar. Hver gat lamið mann í pissuspreng ? Geir Haarde; það geta ekki allar farið heim af ballinu með sætustu stelpunni. GIB, það er gott að búa í Kópavogi.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kynntist Gunnari Thoroddsen á sínum tíma 15 ára sem sendill hjá Bókaverslun Snæbjarnar. Minnist ferðar til hans með bækur. Var boðið inn í kaffi, sem Dóra Ásgeirsdóttir færði okkur. Fékk síðan rúmlega klukkustundar kennslustund. Ferðirnar áttu eftir að verða fleiri og kaffibollarnir. Stórmerkilegur maður, Gunnar Thoroddsen. Bókin er á listanum yfir þær bækur sem eru næstar í röðinni.
Sigurður Þorsteinsson, 29.12.2010 kl. 23:24
Besta bók sem ég hef lesið lengi
..Þjófstartaði og fékk hana fyrir jólin..Tók mig sex daga að lesa þessar rúmu 600 blaðsíður..Fékk góða innsýn í manninn Gunnar Thoroddsen..GÓÐA
Maðurinn minn hélt því fram að ég væri ástfangin af sögupersónunni
Ég heyrði Stefán Ólafsson hagfræðing segja á Rás 2 í gærmorgun að bókin opinberaði slæm vinnubrögð Sjálfstæðismanna. Svo voru þessi ummæli margendurtekin í allan gærdag. Það fauk í mig. Hafi vinnubrögðin orkað tvímælis þá vil ég fá að lesa svona opinskáa sögu frá einhverjum forystumanni á vinstri vængnum á þessum tíma. Til þess að fá samanburð. Spái því að það hafi ekki mikið öðruvísi verið tekið á hlutunum þar..
Bestu kveðjur og gleðilegt nýtt ár.
Silla.
Sigurbjörg Eiríksdóttir, 30.12.2010 kl. 08:19
Hann heitir Guðmundur Ólafsson hagfræðingurinn, ekki Stefán:) Sorrý..
Sigurbjörg Eiríksdóttir, 30.12.2010 kl. 09:33
Hef alltaf vitað Siggi að þú umgengst helst mikilmenni ! Gamanlaust, þá er gaman að eiga svona minningar og þau hjónin hafa séð þínar góðu hliðar.
Gunnar var vissulega umdeildur maður og menn munu alltaf hafa á honum mismunandi skoðanir. Hafði gaman af að lesa um hans lífsreglur og baráttu við að verða betri maður. Las nokkrum dögum áður Ofvitann eftir Þórberg. Hann var alltaf að fást við sínar lífsreglur, hafði sett sér nýjar reglur að morgni, sem svo voru allar brotnar að kvöldi. Það er ekki auðvelt að vera frómur maður og gallalaus.
Jón Atli Kristjánsson, 30.12.2010 kl. 13:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.