20.12.2010 | 14:00
Ímyndunaraflið, afl hins góða.
Ímyndunaraflið er hinsvegar ótrúlega öflugt og dásamlegt tæki, sem ekki hefur alltaf notið sannmælis. Þetta afl er misjafnlega sterkt hjá fólki eftir aldri og þekkt er hvað börn geta haft frjótt og sterkt ímyndunarafl. Sá sem hefur þroskað sitt ímyndunarafl, getur farið í ferðalög í huganum, næstu því eins raunverulegt og raunveruleikinn sjálfur.
Ég held því fram að þessi hæfileiki dofni með aldri, hafandi svo sem ekkert fyrir mér, og því miður sé ég þetta sem eina af neikvæðu hliðum þess að fullorðnast.
Við munum betur það sem er skemmtilegt og fallegt, það ljóta viljum við ekki muna og reynum að flæma það í burtu. Hvert það fer er ráðgáta en þegar mikið af ljótum hugsunum hefur farið eitthvað, þá getur maður orðið veikur, bæði andlega og líkamlega.
Sæki ljótar hugsanir á hugann er fátt betra en hugsa eitthvað fallegt, nota ímyndunaraflið og upplifa það fallega, sem gerst hefur í lífinu. Þar á hver sitt leyndarmál, en allir hafa upplifað fallega hluti, það kann stundum að vera djúpt á þeim en þeir eru þarna.
Hvernig sem á því stendur, er það fallega í mínu lífi, tengt náttúrunni, sveitinni, fjöllunum, víðáttunni. Þetta eru ekki góðar fréttir fyrir þéttbýlið, hvers vegna sjáum við ekki fegurð í því.
Hvaða afl er það sem togar svona í mann og er svo sterkt. Svari hver fyrir sig
Ímyndunaraflið hjálpar þér að útvíkka hugsunina. Það er nær takmarkalaust og er beintengt við sálina. Það er heldur ekki bundið af hinu liðna, ótta, skoðunum eða læsingum. Ímyndunaraflið er okkur gefið til að stækka okkar andlega heim og næra sálina.
Gleymum ekki hinni andlegu líkamsrækt, því allt verður þetta að fylgjast að í leit okkar að betra lífi og hamingju.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Falleg bloggfærsla. Andleg líkamsrækt er nauðsynleg. Hún ætti að koma á undan hinni:)
Sigurbjörg Eiríksdóttir, 20.12.2010 kl. 14:09
Það er hægt að sjá ýmislegt fallegt í þéttbýlinu, bara ef maður hefur þolinmæði til þess að finna það og njóta þess. Fari maður í gönguferð um Kópavogsdal eða Laugardalinn kemst maður oft í kyrrlátt hugarástand sem er mjög gott, ekki síst ef mikið er að gera í vinnunnu, þ.e. mikið stress. En ég neita því ekki að oft er fallegt úti á landsbyggðinni, en við þurfum þá að drífa okkur þangað. Hugmyndin um andlega líkamsrækt hljómar vel, auk þess sem hún er ódýrari en kort í World Class!
Geir Agnar Guðsteinsson, 20.12.2010 kl. 16:59
Virkilega fallega skrifað pabbi minn !
Kolbrún Vala Jónsdóttir, 22.12.2010 kl. 11:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.